Artist: Morthens, Bubbi Album: Unsorted Song: Við Gróttu Translated title:
Við Gróttu letra
Við Gróttu songtext
Við Gróttu lyrique
Við Gróttu testo
Við Gróttu referencias
Í rauðbláu húmi sólin sest niður, yfir sjónum er miðnæturfriður, þar er vitinn sem vakir allar nætur. Varlega aldan snerti okkar fætur. Sporin í sandinum hverfa eins og árin, eins hefur gróið yfir gömlu sárin.
Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég, og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég.
Dimmblá skýin skreyta sjónarhringinn. Þú skoðar sem barnið þarabynginn og hlátur þinn fyllir mig fögnuði þess, sem finnur að lífið hefur valið honum sess, við hlið hennar allt þar til lífinu lýkur. Að lifa með henni það er að vera ríkur.
Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég, og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég,
jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég.
Svo loka ég augunum örlitla stund, augnablikið á sinn hljóðláta fund. og hjartað hvíslar ástin er göldrótt, og hafið verður eitt augnablik hljótt. ást okkar er orðin stór og sterk. Ég elska þig mitt fallega furðuverk.
Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég, og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég, og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég, jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég.
Website contains: Morthens, Bubbi - Við Gróttu song lyrics; music and general forums; music stories;
spanish & german versions; power lyrics request engine for Morthens, Bubbi - Unsorted.