Viltu sjá mig verða einn af þeim

tek mín seinustu skref eins og slitin reim

ekki séns því ég er ég

ekki séns því ég er ég

ég sé engan mun ef þú spyrð að því

allir hér eru eins sama hvert ég sný

nema ég því ég er ég

nema ég því ég er ég



[Benni Valdez]

Þið þarna úti mér þykir það leitt

en sama hvað þið hatið er ég ekki að fara neitt

og sama hvað, þið fáið engu breytt

og það besta við það allt er að ég fæ þetta greitt

svona er það... svo veistu hvað

allt sem ég snerti verður sjóðandi heitt

þú heyrir nafnið og þá veistu að þú ert kominn í feitt



Viltu sjá mig verða einn af þeim

tek mín seinustu skref eins og slitin reim

ekki séns því ég er ég

ekki séns því ég er ég

ég sé engan mun ef þú spyrð að því

allir hér eru eins sama hvert ég sný

nema ég því ég er ég

nema ég því ég er ég



[Brisk]

Benni er búinn að kála ykkur, þið gleymduð allir skotheldu vestunum

svo ég nota tímann í að ganga á eftir stelpunum

hey sæta, þínar draumar rætast, þegar okkar varir mætast

við munum þræta og þig græta, þú endar ein með enga mynd til að tæta

því ég var bara þinn í eina nótt, ekki vera að biðja um meira en það

ég meina það, jafnvel þó þú viljir ekki heyra það

en elskan ef þú náðir engu sem ég sagði

hringdu þá í mig og ég kem á augabragði



Viltu sjá mig verða einn af þeim

tek mín seinustu skref eins og slitin reim

ekki séns því ég er ég

ekki séns því ég er ég

ég sé engan mun ef þú spyrð að því

allir hér eru eins sama hvert ég sný

nema ég því ég er ég

nema ég því ég er ég