Opnaðu augun, sjáðu hvar þú ert
Ég er og bíð þín þar
Hugurinn ber þig aðra leið en hvert?
Enn heldur' af stað brenna spurningar

Ég bíð
Þú leitar svarar út um allt
Hvar endar þessi ferð?
Til hvers er farið?
Þá líða ár
Og láta uppi lítið ráð
Ef leitarðu til mín
Þá veistu svarið

Því ert að hlaupa, leita langt og skammt?
Ég leynist þér ei, ég er allsstaðar

Ég bíð
Þú leitar svarar út um allt?
Hvar endar þessi ferð?
Til hvers er farið
Þá líða ár
Og láta uppi lítið ráð
Ef leitarðu til mín
Þá veistu svarið

Ég bíð
Þú leitar svarar út um allt
Ef leitarðu til mín
Þá veistu svarið